Mikið er ég ánægð að ég skellti á mig smá maskara og sólarpúðri í
morgun áður en ég rölti niðrá Tony&Guy ég segi nú ekki annað.
Ég var að fara að láta klippa toppinn og átti að fá einhverja
Björgu en afgreiðslukonan spurði hvort ég væri til í að fá bara
næsta lausa og ég var alveg til í það. Ég fékk strax á
tilfinninguna hvað myndi gerast, það lá svona í loftinu, ég vissi
strax að þetta yrði enginn venjulegur morgun.
Þið munið kannski eftir Mr. Handsome Viking Man sem ég bloggaði um
einhverntíman um daginn, daginn þegar ég mætti í klippingu í
annarlegu ástandi og þurfti endilega að lenda á þessum náunga og
var svo í tómu tjóni allan tímann alveg að farast úr... jæja ég fer
ekki lengra með þetta. Allavega, leiðir okkar lágu aftur saman í
morgun. Ég var svo heppin að hafa dreymt mjög svo “eðlilega” drauma
í nótt og var mjög normal á því (samt pínu kú kú) þannig að ég hélt
ég yrði bara í góðum málum, en svo reyndist ekki vera. Ég bara veit
ekki hvað er að mér, ég ræð ekki við mig í kringum þennan mann, ég
verð alveg eins og mongólíti, sem er einmitt ekki eins og ég vil að
hann sjái mig. Ég var algjörlega spastísk, með einhver fáránleg
komment, iðaði öll í sætinu og vissi ekkert hvert ég ætti að horfa.
Svo var ég alveg geðveikt að glápa og þá leit hann upp og ég leit
undan ógeðslega vandræðaleg. Djöfull var gaurinn on to me. Hann var
alveg að sjá í gegnum mig og mongólíska töffarann sem braust út í
mér í þessum erfiðu aðstæðum. Hann glotti svona út í eitt. En já
það var svo sannarlega rafmögnuð stemmning niðrá Tony&Guy í
morgun, þetta voru góðar 20 mínútur. Það þarf ekki mikið til að
gera mig hamingjusama.
Ég er svona að velta því fyrir mér hvort ég ætti að panta mér
klippingu sérstaklega hjá honum, ég hef nefnilega lúmskt gaman að
þessu. Verst að ég man ekkert hvað hann heitir. Ég hringi þá
niðrá stofu, “já ég ætla að panta tíma hjá klippara. Ég veit ekki
hvað hann heitir en hann er hávaxinn, ljóshærður, svoldið
myndarlegur svona *hóst hóst.* Já ertu ekki að fatta? Hann er með
frekar karlmannlegar hendur, smá bumbu en alls ekki feitur, góðleg
blá augu, ljúfa snertingu, býr yfir lipri klippitækni, mjög
sjarmerandi og kurteis í fasi, svona mjúki en jafnframt sterki og
trausti gaurinn, ekki með trúlofunar eða giftingarhring. Er þetta
að hringja einhverjum bjöllum”? He he djöfull ætla ég að gera það.
Ég bara verð.
Æi þetta er svo klikkað eitthvað. Ég á svo erfitt með
mig
.